Pisa og Málstol

Nú nýverið hefur enn komið í ljós að unglingar íslenskir hafa ekki tilskilið vald hvorki á tölvísi, skrifuðu né mæltu máli frónsku eða bara almennri skynsemi. Þurfti útlenskt prófrifrildi kennt við þá merku borg og turn hennar Pisa til að komast að þessum augljósu sannindum sem hljóta að blasa við hverjum hugsandi manni og hefur gert það lengi. Raunar heitir borg þessi eftir þeim merka endurreisnarheimspekingi og menntafrömuði, Gisuseppe Pisa, sem mun reyndar einnig hafa fundið upp matinn sem nú er kallaður Pizza en síðar orðið hljóðbreyting á því nafni. 

Málið hefur verður vanrækt á öllum vígstöðvum um langt skeið eins og víst fólk hefur numið. Ein skínandi undantekning eru þó skemmtiþættirnar Málstol sem héldu merki tungunnar á lofti í styrkum höndum Braga nokkurs sem mun réttnefndur. Nefni ég þetta því í lok þátta hans voru jafnan þrautir með fallegum orðsamsetningum sem setja átti í viðeigandi föll, kyn og hætti samkvæmt kúnstarinnar reglum. Skortur á slíkum viðfangsefnum er að mínu mati það sem veldur hnignun menntastigs þjóðarinnar, það og skortur á almennilegum upplesnum stafsetningaræfingum. Til að gefa kennurum hugmyndir að slíku bendi ég á fjárstjóð í Málstolinu góða, og gæti spunnið upp sjálfur: 

Myndarlegur umsjónarmaður mönnunar umönnunarteymisins kímdi yfir kviðlingi kenjóttrar kenndrar kennslukonu keflvískrar. 


Comments